flestir berjast við freistingar endrum og sinnum. Dæmi um freistingar fólks er ís, kökur, súkkulaði og syndugra eðlis. Freistingar Gauja eru kökur. Núna inn á baðherbergi er rakvél.
Hún er á þurrkuvélinni. Með límband vegna einhverrar bilunar. Stundum kviknar á ljósaperu og ég slekk á þeirri ljósaperu um leið og kveikt er á. Ljósaperan bendir á rakvélina, rakvélin segir: "Hæ, ég er sniðug, komdu að leika." Ég treysti henni ekki. ég þekki rakvélar. þær segja þetta alltaf og hafa gaman að hvítum lygum. Eins og þegar Eva lét gabbast af höggorminum. ég passa mig því alltaf þegar ég fer á klósettið. ég lét gabbast um daginn af þeirri bláu. það færði mig enn nær Jóni Sigurðssyni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli