þriðjudagur, desember 06, 2005

predik?


fyndið.

í morgun þá var illt í efni og góð ráð dýr. ÉG ÁTTI ENGA BOLI! þannig að ég þurfti að fara í skyrtu og þar sem ég var að fara í skyrtu á annað borð þá ákvað ég að setja bindi og alles. viðbrögðin voru frekar svakaleg. allir bara segjandi hvað maður væri fínn og allir spurðu hvort ég væri að predika í dag. ég sagði svo nú aldeilis ekki vera . ég veit ekki alveg hvað viðbrögðin þýða, er ég alltaf í svona ljótum fötum að allir eru dauðfegnir að sjá mig í einhverju öðru?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli